Kjöt & Kúnst / Breiðumörk 21 / 810 Hveragerði / Sími: 483-5010
kjotogkunst2.gif fyrir saelkera.jpg 00333.jpg
Í ársbyrjun 2003 voru fest kaup á rúmlega 3oo fermetra húsnæði við Breiðumörk 21 í Hveragerði fyrir starfsemi Kjöt & Kúnst.
Í húsnæðinu hafði áður verið verslunin Hverakaup til 15 ára og enn lengra aftur í tímann, verslunin Reykjafoss, sem eldra fólk man vel eftir.
Húsnæðið var allt endurnýjað, vatn, hiti og skolp, málað utan sem innan, veggir færðir til og nýjir smíðaðir, öll gólf flísagalögð
og síðast en ekki síst hveragufa lögð frá hverasvæðinu inn í eldhús.
Það var svo 7.ágúst 2003 sem Kjöt & Kúnst opnaði sælkeraverslun með glæsilegu kjötborði og veisluþjónustu, einnig var boðið uppá heitan mat, fyrst í hádegi en síðar líka á kvöldin.
Maturinn var seldur var eftir vigt, sem þótti skemmtileg hugmynd og hentaði vel fólki á hraðferð, sumarhúsafólki á leið sinni í sveitina , heimafólki og öðrum sunnlendingum.
Eldhúsið gekk þá sem nú fyrir hveraorku og
mikil uppbygging var á Suðurlandi sem annarsstaðar á landinu, fjör og framkvæmdargleði var allt í kringum okkur og allir þurftu að borða.
Svo kom kreppan og við þurftum að skipta um takt,og breyttum sælkeraversluninni í kaffihús, stækkuðum salinn fyrir ferðamanninn og komum fyrir aðstöðu fyrir hveraeldun utandyra.
Síðan hleyptum við meiri krafti í veisluþjónustuna og veitingadeildina
þar sem við getum eftir breytingarnar tekið á móti 100 manns í sæti.
Í dag bjóðum við upp á ala carte matseðil, grillmatseðil, ýmiskonar hlaðborð og heimabakað góðgæti með kaffinu.
Hveraeldun og bakstur eins og við bjóðum uppá með okkar sniði er einstakt og þekkist ekki annarstaðar.
Fyrirtækið hefur 2.sinnum fengið umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar og einnig verið tilefnt til fjöreggsins fyrir lofsvert framtak í matvælaiðnaði