Veitingastaðurinn er opinn alla virka daga frá kl. 11.30 20.00 Boðið er uppá hádegisverð, þar sem hægt er að velja úr 8-12 mismunandi íslenskum heimilisréttum, Hver og einn velur það sem hann vill á sinn disk og það meðlæti sem hann óskar eftir, diskurinn er síðan vigtaður,viðskiptavinurinn ræður sjálfur skammtastærðinni og þar með verðinu. Panta þarf fyrir hópa með minnst dags fyrirvara. Fast verð er fyrir hópa kr. 1.69o.- fyrir manninn í hádegi, en þá fylgir rjómalöguð súpa og kaffi á eftir. Sé um kvöldverð að ræða, er verðið kr. 2.500.-,en þá fylgir rjómalöguð súpa, salatbar, kaffi og desert kaka. Milli mála er boðið uppá kaffi og kruðerí, súpu, salatbar og annað léttmeti. Veitingastaðurinn hefur vínveitingaleyfi. Lokað er um helgar, nema fyrir sérpantanir og hópa.
Veitingastaður
Kjöt & Kúnst / Breiðumörk 21 / 810 Hveragerði / Sími: 483-5010
- Forsíða
- Veitingastaður
- Sælkeraverslun
- Veisluþjónusta
- Hveraeldhús
- Heilsukostur
- Salaleiga
- Borðbúnaðarleig
- Tilboð
- Fréttir
- Um okkur
- Tenglar
- Þjónustan
- Hafðu samband