Um okkur
Þann 11. ágúst 1995, stofna Ólafur Ingi Reynisson og Anna María Eyjólfsdóttir, fyrirtækið Heilsukost ehf. Byrjað var í leiguhúsnæði í Austurmörk 20. Húsnæðið,sem lét ekki mikið yfir sér, var allt tekið í gegn af þeim hjónum, málað, smíðað og flísalagt í hólf og gólf. Þar var lítið forherbergi með afgreiðsluborði, sem í voru bæklingar og matseðlar en auk þess kælir með sýnishornum af framleiðsluvörunum. Innaf móttökuherberginu var stórt og fullbúið eldhús og þar var alltaf mikið að gerast. Í fyrstu var starfsemin þríþætt: Framleiðsla og sala á matvöru, alhliða veisluþjónusta og sérhæfð veitingaþjónusta við mötuneyti og að auki leigður út borðbúnaður til veisluhalds. Í ársbyrjun 2003 var keypt 300 fermetra húsnæði undir starfsemina að Breiðumörk 21. Þar hafði áður verið verslunin Hverakaup til 15 ára en eldra fólk man eftir Reykjafoss versluninni, enda húsið oft enn í dag nefnt gamli Reykjafoss. Til að geta flutt starfsemina, þurfti vel að taka til hendinni, húsið var nánast gert fokhelt og hafin uppbygging. Aftur var hafist handa við að múra, flísaleggja, pípuleggja, smíða og leggja að húsinu hveragufu frá hverasvæðinu. Það var svo 7. ágúst 2003, sem Kjöt og kúnst, sælkeraverslun, veitingahús og veisluþjónusta var opnað var með pomp og pragt, góðum gestum boðið uppá léttar veitingar í tilefni þess.
Kjöt & Kúnst / Breiðumörk 21 / 810 Hveragerði / Sími: 483-5010
heilsuk@eyjar.is
-
Forsíða
-
Veitingastaður
-
Sælkeraverslun
-
Veisluþjónusta
-
Hveraeldhús
-
Heilsukostur
-
Salaleiga
-
Borðbúnaðarleig
-
Tilboð
-
Fréttir
-
Um okkur
-
Tenglar
-
Þjónustan
-
Hafðu samband