Fréttir
Kjöt & Kúnst / Breiðumörk 21 / 810 Hveragerði / Sími: 483-5010
heilsuk@eyjar.is
Blómstrandi dagar í Hveragerði 13 ágúst 2004: Kjöt og kúnst hlýtur umhverfisverðlaun, fyrir snyrtilegt umhverfi og fallega fyrirtækislóð.
Tilnefning til Fjöreggsins Heilsukostur ehf matvælaframleiðsla, fær tilnefningu ásamt 5 öðrum til Fjöreggsins, árið 1999, sem eru árleg verðlaun Samtaka iðnaðarins fyrir lofsvert framtak í matvælaiðnaði. Heilsukostur er tilnefndur vegna framleiðslu á heilsulifrarpylsu með hrísgrjónum og Smyrju, fitulitlu viðbiti. Í umsögn dómnefndar er lokið lofsorði á sunnlenska fyrirtækið Heilsukost og segir þar að fyrirtækið hafi verð að þróa gamla og nýja matargerð undir slagorðunum Heilsa og hollusta handa þér og Minni fita, færri hitaeiningar, aukin hollusta Má þar nefna lifrarpylsu með hrísgrjónum í stað mörs og Smyrju , sem er viðbit með lítilli fitu. Aðrar tilnefningar til Fjöreggsins voru, Grænt og gómsætt. Bakkavör, Þykkvabær, Vilkó og Útgerðafélag Akureyrar, sem hreppti verðlaunin fyrir fullvinnslu á hráefni.
Anna María Eyjólfsdóttir með viðurkenninguna.
- Forsíða
- Veitingastaður
- Sælkeraverslun
- Veisluþjónusta
- Hveraeldhús
- Heilsukostur
- Salaleiga
- Borðbúnaðarleig
- Tilboð
- Fréttir
- Um okkur
- Tenglar
- Þjónustan
- Hafðu samband