Kjöt & Kúnst / Breiðumörk 21 / 810 Hveragerði / Sími: 483-5010
kjotogkunst2.gif fyrir saelkera.jpg 00333.jpg
Hveraeldhús, hveraeldun og bakstur.
Við njótum þess að vera vel í sveit sett, rétt við hverasvæðið í Hveragerði, vegna þessa höfum fangað hveragufuna og fært heim í eldhús.
Hveraeldhúsið okkar er einstakt, það eina sinnar tegundar í heiminum.
Auk þess að nýta hveragufuna innandyra við eldamennsku þá höfum við
nýverið sett upp aðstöðu úti, upp við húsvegginn, þar er hveragufan beisluð og hverabakstur og eldun fer þá einnig fram utandyra, sem aftur gerir okkur kleift að sýna þessa eldamennsku ferðafólki og matargestum okkar.
Á góðviðrisdögum er skemmtilegt að borða úti við hverinn og
upplifa þetta náttúruundur.
Hveraeldun skilar frábærum gæðum, þar sem bragðgæðin haldast,
ekkert tapast vegna ofþurrkunnar, öll vítamín og steinefni halda sér í hráefninu. Hverabakstur er að sama skapi engum öðrum bakstri líkur.
Í hvernum má baka t.d. hverabrauð, skúffuköku, jólaköku og fl.
Eldamennsku sem þessa nýttu forfeður okkar sér og þótti góður
búhnykkur að hafa aðgengi að hver.
Hvera-hlaðborð sem eru hvað mest vinsæl hjá okkur:
Fjalla-Eyvindur
Lambaframpartur smátt sagaður, rófur, kartöflur, hrísgrjón,
hverabrauð, allt þetta er eldað í hvernum,
Borið fram með karrísósu og hverasoðinni íslenskri kjötsúpu .
Desert skyrterta.
Halla.
Hveraelduð kjúklingabringa, sérlega safarík elduð með þessum hætti.
Borið fram með sætum kartöflum, blómkáli, mildri piparsósu,
karríhrísgrjónum og waldorfs-salati.
Þessum rétti fylgir rjómasveppasúpa, nýbökuð brauð og
hveraelduð kartöflu-hvítlauks smyrja.
Kaffi og hjónabandssæla.
Huldukona.
Hvereldaður fiskur með rækjusósu.
Borið fram með hveraelduðum kartöflum, hrísgrjónum
salati og spergilkáli. Þessum rétti fylgir rjóma aspargussúpa
nýbakað brauð. Kaffi og hvera-súkkulaðiterta.
river-hvita-hvergardi.jpg iceland-hveragerdi-004.1.jpg